Vi i klassen Træfpunktet Vurderingskriterier Læseplanen Gode råd og tips Sprog og stil Netdansk
Matsviðmið í ritun
  1 - Det er ikke godt 3 - Godt på vej 5 - Meget godt
Hugmynd

Enginn skýr tilgangur. Litlar upplýsingar. Lesandi er í lausu lofti.

Efnið er að byrja að skýrast. Er enn full vítt. Skilur lesanda eftir með spurningar. Skýr texti. Viðeigandi, augljós og góð smáatriði. Frumlegar og ferskar hugmyndir.
Skipulag Innra skipulag ekki sýnilegt. Engin kynning né niðurstaða. Erfitt fyrir lesanda að fylgja þræði. Skipulag nægilega skýrt til að lesandinn kemst í gegn um textann. Kynning og niðurstaða merkjanleg. Lausir endar ekki hnýttir. Skipulagið styrkir hugmyndina. Skipulagið ber lesandann áfram. Kynningin lokkar og niðurstaða lýkur verkinu.
Rödd höfundar Höfundur sýnir efninu ekki áhuga. Ritunin er eintóna, flöt, líflaus eða vélræn. Engin áhætta tekin. Höfundur er einlægur, en gefur sig ekki allan. Árangur er góður en ekki grípandi. Álit höf oft veikt. Rödd höfundar skín í gegn. Gefur tilfinningu fyrir manninum að baki texta. Tekur áhættu.
Orðaval Takmarkaður orðaforði og tungumálið óljóst. Boð komast ekki til skila. Orð eru rangt stafsett. Orðin virka ekki í textanum. Málið vantar allan kraft. Orðanotkun er rétt, en vantar frumleika og bragð Sagnir eru litlausar og lýsingarorð máttlaus. Orðin eru kraftmikil, sértæk, nákvæm og hitta í mark. Mál texta er eðlilegt. Lífleg notkun sagna og nafnorð nákvæm
Flæði textans Erfitt aflestrar. Setningar snubbóttar, ófullgerðar Praktísk. Lítil mússík, en samt ákveðin. Setningar eru rétt byggðar og byrja á ólíkan máta. Textinn flæðir. Hefur ryþma. Sterkar vel byggðar setningar - mislangar.
Málfræði og stafsetning Villur í stafsetning, málnotkun, málfræði. Góð stjórn á rithefðum. Starfs. Punktar oftast rétt notaðir. Sterk og góð kunnátta í réttritun.
Lengd og frágangur Textinn ekki nema nokkrar línur, handskrifaðar. Blýantur notaður, en hvorki penni né ritvinnsla. Textinn nær hálfri síðu, vélritaðri eða heilli handskrifaðri. Uppsetning og frágangur sæmilegur. Textinn er heil síða eða meira. Allur frágangur vandaður. Texti unninn í tölvu eða afar vel skrifaður.Texta skipt í efnislega afmarkaðar greinar.